09.09.26 - 15:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óvíst hvort Atli Þór spili meira á tímabilinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Þór Jónasson hefur ekki spilað með Fram síðan í lok júní þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í útisigri á Akranesi. Atli, sem er lánsmaður frá Víkingi, er næstmarkahæsti leikmaður Fram á tímabilinu með sjö mörk í tíu leikjum.
Atli meiddist á æfingu og getur vonandi spilað aftur efir landsleikjahlé.
Atli meiddist á æfingu og getur vonandi spilað aftur efir landsleikjahlé.
„Það er erfitt að meta hvenær hann verður klár, í fyrstu var talið að hann yrði að fara í aðgerð en eftir samtöl við lækna var ákveðið að meiðslin ættu lagast af sjálfu sér. Hann er búinn að vera frá í um tvo mánuði og eftir samtöl við lækni er hann að vonast eftir að geta tekið þátt í einhverju eftir landsleikjahléið, byrjað að æfa og jafnvel möguleiki á mínútum þegar að því kemur. En á þessum tímapunkti er óvíst hvort það takist. Hann er í lyftingarsalnum og er að gera það sem hann getur til að halda sér í standi, það er ennþá langt í hann," segir Rúnar Kristinsson sem er þjálfari Fram.
„Það væri frábært fyrir okkur ef hann gæti tekið þátt í einhverju í restina. Þetta er búinn að vera mikill missir fyrir okkur, en sem betur fer höfðum við góða leikmenn til að taka við keflinu."
Atli er 25 ára stæðilegur framherji sem er á láni hjá Fram frá Víkingi. Framundan hjá Fram eru fimm leikir í efri hluta Bestu deildarinnar, næsti leikur er heimaleikur gegn Breiðabliki næsta þriðjudagskvöld.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 24 | +50 | 59 |
| 2 | KR | 24 | +28 | 47 |
| 3 | Fram | 24 | +12 | 46 |
| 4 | Breiðablik | 24 | +1 | 33 |
| 5 | ÍA | 24 | -3 | 33 |
| 6 | Keflavík | 24 | -8 | 29 |