Fotbolti.net
09.09.26 - 17:35
Brynjar Ingi Erluson

Skoraði þrennu á tólf mínútum

Demirovic skoraði fyrstu þrennu tímabilsins í Meistaradeildinni

Demirovic skoraði fyrstu þrennu tímabilsins í Meistaradeildinni

Canon

Mynd: EPA

Bosníski sóknarmaðurinn Ermedin Demirovic skoraði fyrstu þrennu tímabilsins í deildarkeppni Meistaradeildarinnar þegar hann skoraði þrívegis á tólf mínútna kafla í fyrri hálfleik gegn Viking.
Stuttgart er 3-1 yfir gegn Noregsmeisturum Viking í hálfleik og hefur Demirovic skorað öll mörk þýska liðsins.

Hann braut ísinn á 20. mínútu með lúmsku skoti af stuttu færi sem fór í slána og inn eftir sendingu frá vinstri. Zlatko Tripic jafnaði tveimur mínútum síðar en Demirovic kom Stuttgart aftur yfir á 26. mínútu.

Þá fékk hann stungusendingu inn fyrir vörnina og lét vaða. Markvörður Viking kom höndum á boltann en varði hann í slána og inn.

Demirovic fullkomnaði þrennuna sex mínútum síðar. Hann tók þá við háum bolta með mjöðminni og skaut á markið. Aftur náði markvörðurinn snertingu en boltinn fór af honum og í netið.

Þetta er fyrsta þrenna Meistaradeildarinnar á tímabilinu og ein sú fljótasta í sögu keppninnar, skoruð á aðeins tólf mínútum. Mohamed Salah á þó enn metið eftir þrennu á sex mínútum í 7-1 sigri Liverpool á Rangers árið 2022.

Íslendingurinn Amin Cosic er á bekknum hjá Viking og gæti þreytt frumraun sína í Meistaradeildinni í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.