09.09.26 - 19:10
Brynjar Ingi Erluson
Skoraði tvennu í síðasta leik og varði víti í kvöld - Daniel Ingi lagði upp

Ronald Koeman yngri skoraði tvennu í síðustu leik og varði víti gegn Twente í kvöld

Mynd: EPA

Daniel lagði upp í tapi Kolding

Mynd: Kolding

Sonur hollenska þjálfarans Ronald Koeman er að eiga frábæra viku í hollenska boltanum.
Hann skoraði tvívegis úr vítaspyrnum í 2-2 jafntefli við Cambuur í síðasta leik. Spyrnuhæfileikana á hann ekki langt að sækja enda var faðir hans þekktur fyrir skotfimi sína á ferlinum.
Telstar tapaði 1-0 fyrir Twente í kvöld en Koeman gerði þó sitt og varði vítaspyrnu frá Wout Weghorst undir lokin. Öflugur á báðum endum vallarins.
Nökkvi Þeyr Þórisson var í byrjunarliði Telstar eftir að rauða spjaldið sem hann fékk gegn Cambuur var fellt úr gildi. Við endurskoðun þótti brotið ekki verðskulda rautt spjald.
Hann lék í klukkutíma en Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki með Twente vegna meiðsla. Twente er í 5. sæti með tíu stig en Telstar í því fjórtánda með fjögur stig.
Daniel Ingi Jóhannesson lagði upp eina mark Kolding í 2-1 tapi fyrir OB í danska bikarnum. Hann er á láni hjá félaginu frá Nordsjælland.
Jakob Gunnar Sigurðsson og félagar í Hilleröd eru einnig úr leik eftir 2-1 tap fyrir Vanlöse í framlengdum leik. Jakob fór af velli undir lok venjulegs leiktíma.

Ook Wout Weghorst maakt kennis met penaltyspecialist Ronald Koeman jr. ??????#twetel pic.twitter.com/MfGrSBl4A7
— ESPN NL (@ESPNnl) September 9, 2026

Daniel lagði upp í tapi Kolding

Mynd: Kolding