Fotbolti.net
09.10.14 - 15:21
Hafliði Breiðfjörð

Orri Þórðarson tekur við kvennaliði FH (Staðfest)

Orri Þórðarson tekur við kvennalið FH.

Orri Þórðarson tekur við kvennalið FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Orri Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs FH að nýju en hann stýrði liðinu áður fyrir nokkrum árum. Leikmönnum liðsins var tilkynnt þetta í gær.
Orri tekur við starfinu af Þórði Jenssyni sem stýrði liðinu í sumar á sínu fyrsta ári. Undir hans stjórn féll liðið úr Pepsi-deildinni í sumar og leikur því í 1. deild á næstu leiktíð.

Orri sem verður fertugur á næsta ári hefur þjálfað yngri flokka FH til fjölda ára og þá oftast 3. flokk karla.

Hann stýrði kvennaliði FH áður í 1. deild kvenna sumarið 2007.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.