Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 09. nóvember 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lillý samdi að nýju við Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Lillý Rut Hlynsdóttir hefur framlengt samning sinn við Val og mun hún leika áfram með liðinu.

Hinn 23 ára gamla Lillý gekk í raðir Vals frá Þór/KA í fyrra og hjálpaði hún Val að verða Íslandsmeistari á sínu fyrsta tímabili.

Hún spilaði 15 leiki með Val í deild og bikar í sumar, en liðið hafnaði í öðru sæti á eftir Breiðablik.

„Lillý Rut Hlynsdóttir hefur framlengt samning sinn við Val. Lillý er 23 ára miðvörður sem gekk til liðs við Val fyrir tímabilið 2019. Þrátt fyrir ungan aldur er Lillý reynslumikill leikmaður sem hefur þegar leikið 141 leik í efstu deild," segir í tilkynningu Vals.
Athugasemdir
banner
banner
banner