Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 10. janúar 2022 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kagawa í belgísku deildina (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Shinji Kagawa, fyrrum leikmaður Manchester United og Dortmund, er farinn frá PAOK í Grikklandi og búinn að semja við félag í belgísku deildinni.

Kagama semur við Sint-Truiden og spilar með liðinu út leiktíðina í Belgíu.

Kagawa gekk í raðir PAOK frá Zaragoza í fyrra. Í Grikklandi lék hann einungis sex deildarleiki og ákvað að rifta samningi sínum á dögunum.

Kagawa er 32 ára gamll og á að baki 97 landsleiki fyrir Japan. Hann var leikmaður Man Utd á árunum 2012-2014. Hjá Dortmund var hann árin 2010-2012 og aftur 2014-2019.


Athugasemdir
banner
banner
banner