Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 10. janúar 2023 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Jón Daði kom Bolton í undanúrslit
Mynd: Getty Images
Jón Daði Böðvarsson skoraði eina mark leiksins er Bolton Wanderers lagði Portsmouth, 1-0, í Papa Johns-bikarnum í kvöld.

Selfyssingurinn skoraði markið á 17. mínútu eftir laglega sendingu frá Dion Charles.

Þetta var áttunda mark Jóns á tímabilinu en þetta mark fleytti þeim í undanúrslit Papa Johns-bikarsins. Jón Daði fór af velli á 78. mínútu.

Bolton verður því í pottinum er það verður dregið í undanúrslit á laugardag.

Accrington, Cheltenham og Plymouth verða einnig í pottinum.


Athugasemdir
banner