Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 10. janúar 2023 12:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mudryk farinn til Tyrklands ásamt liðsfélögum sínum
Mykhaylo Mudryk.
Mykhaylo Mudryk.
Mynd: Getty Images
Mykhaylo Mudryk er farinn til Tyrklands í æfingaferð með liði sínu, Shakhtar Donetsk frá Úkraínu.

Mudryk flaug ásamt liðsfélögum sínum til Antalya í Tyrklandi fyrr í dag þar sem liðið verður í æfingaferð til þess að undirbúa sig fyrir seinni hluta tímabilsins.

Mudryk, sem er 22 ára kantmaður, hefur verið sterklega orðaður við Arsenal síðustu daga en viðræðurnar ganga hægt.

Á meðan viðræðurnar ganga hægt þá getur hann lítið annað gert en að einbeita sér að Shakhtar.

Mudryk hefur vakið athygli á þessari leiktíð, bæði í úkraínsku úrvalsdeildinni og í Meistaradeildinni. Shakhtar er að biðja um 100 milljónir evra fyrir hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner