Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. febrúar 2019 07:30
Arnar Helgi Magnússon
Dagur Ingi í Keflavík (Staðfest)
Mynd: Raggi Óla
Dagur Ingi Valsson er genginn til liðs við Keflavíkur en hann kemur til liðsins frá Leikni F.

Dagur Ingi er fæddur árið 1999 og hefur leikið með Leikni F. síðustu tvö tímabil. Hann lék 23 leiki á síðasta tímabili.

Dagur er kantmaður en getur einnig leyst stöðu miðjumanns eða framliggjandi miðjumanns.

„Ég valdi Keflavík af því að þetta vel spilandi lið og flottur hópur ásamt tveimur þjálfurum sem geta hjálpað ungum leikmönnum eins og mér," sagði Dagur eftir félagsskiptin.

Fáskrúðsfirðingarnir eru því orðnir tveir hjá Keflavík en liðið fékk til sín Kristófer Pál Viðarsson fyrr í vetur en hann Fáskrúðsfirðingur í húð og hár.

Keflavík hefur leik í Lengjubikarnum í dag en liðið spilar leik við Hauka í Reykjaneshöllinni klukkan 16:00.



Athugasemdir
banner
banner