17.11.26 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Gríðarlega vanmetinn hér heima"

Brynjólfur Willumsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjólfur í leiknum í gærkvöldi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjólfur Willumsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Brynjólfur Willumsson fékk að byrja hjá íslenska landsliðinu gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni í gær og stóð sig býsna vel.
Hann kom boltanum yfir línuna í fyrsta markinu sem Ísland skoraði eftir að Orri Steinn Óskarsson hafði átt bylmingsskot í slána og niður. Spurning er hvort boltinn hafi farið yfir línuna í skoti Orra en Brynjólfur gerði samt sem áður vel og átti góðan leik.

„Orri vill meina að boltinn hafi verið inni. Ég held að það séu myndavélar sem geti mögulega sannreynt það. Það var samt frábært fyrir Binna að skora," sagði Arnar og hélt áfram:
„Hann hefur verið mjög sterkur hjá mér allan þennan tíma, taktískt sterkur og mjög agaður leikmaður. Hann hefur í rauninni fengið færi í hverjum einasta leik, allt frá Úkraínu til Japan, en kannski vantað að stimpla sig inn með marki. Hann á heima á þessu stigi og það var mjög gott að hann skyldi skora."
Brynjólfur er nía og er markahæsti leikmaðurinn í Hollandi. Segja má að þrjár níur hafi byrjað leikinn í gær þar sem Andri Lucas Guðjohnsen og Orri Steinn Óskarsson byrjuðu líka.
„Við höfum alveg gert þetta áður. Við höfum spilað með þremur framherjum ansi lengi þegar Albert er með, þó hann sé kannski meira tíu-týpa. En það er rétt að í þessum leik voru þetta þrjár eiginlegar níur og það var gaman að sjá hvernig það virkaði. Binni er mjög taktískt sterkur framherji og gríðarlega vanmetinn hér heima. Hann gerir alla hluti rétt, bæði í pressu og varnarvinnu."
„Núna er kannski komið hans móment. Hann þarf að trúa því að hann eigi heima á þessu stigi. Þetta á við um stráka sem koma inn í hópinn og eru kannski ekki stórstjörnur okkar. Þeir þurfa að trúa því að þeir eigi heima á þessu stigi og þegar þeir fara að gera það, þá fara góðir hlutir að gerast."