Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 10. febrúar 2021 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Leicester og Sheffield í 8-liða úrslit
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Leicester City og Sheffield United eru komin í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir sigra á heimavelli gegn Brighton og Bristol City.

Kelechi Iheanacho kom inn af bekknum fyrir Jamie Vardy á 62. mínútu og gerði eina mark leiksins í sigri Leicester gegn Brighton.

Iheanacho skoraði á lokasekúndunum eftir nokkuð jafnan leik.

Sheffield verðskuldaði þá sigurinn gegn Bristol City en staðan var markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik.

Spilin breyttust um miðjan síðari hálfleik þegar Alfie Mawson fékk beint rautt spjald fyrir að handleika knöttinn innan vítateigs. Billy Sharp skoraði úr vítaspyrnunni og þar við sat.

Leicester 1 - 0 Brighton
1-0 Kelechi Iheanacho ('94)

Sheffield Utd 1 - 0 Bristol City
1-0 Billy Sharp ('66, víti)
Rautt spjald: Alfie Mawson ('65, Bristol)
Athugasemdir
banner
banner
banner