Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. febrúar 2021 20:13
Ívan Guðjón Baldursson
Grikkland: Sverrir Ingi í undanúrslit
Mynd: Getty Images
PAOK 5 - 2 Lamia
1-0 C. Tzolis ('6)
1-1 D. Adejo ('11)
2-1 S. Schwab ('16)
2-2 D. Bejarano ('24)
3-2 C. Tzolis ('67)
4-2 Rodrigo ('82)
5-2 M. Krmencik ('88)

Staðan var 2-2 í leikhlé en heimamenn í PAOK gerðu tvær skiptingar í síðari hálfleik og tóku öll völd á vellinum.

PAOK tók forystuna á 67. mínútu og þegar gestirnir fækkuðu í vörn til að sækja var þeim refsað. Heimamenn bættu tveimur mörkum við á lokakaflanum og unnu að lokum 5-2. Sverrir Ingi hefur verið iðinn við markaskorun en tókst ekki að koma knettinum í netið í dag.

Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn er PAOK tryggði sig í undanúrslit gríska bikarsins með stórsigri gegn Lamia.

Sverrir Ingi hefur verið að gera vel með PAOK, sem situr í þriðja sæti efstu deildar sautján stigum eftir toppliði Olympiakos. PAOK er í harðri baráttu um annað sætið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner