Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
   þri 10. febrúar 2026 14:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Davíð Viðars: Finnst óskiljanlegt að hann sé ekki í þessum hóp
Kjartan Kári fékk ekki kallið.
Kjartan Kári fékk ekki kallið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Kári er í hópnum.
Baldur Kári er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hefði viljað sjá Tómas Orra í hópnum
Hefði viljað sjá Tómas Orra í hópnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Og Ísak Óla.
Og Ísak Óla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð er yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Davíð er yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Fyrir mér er hann einn af allra bestu leikmönnunum í þessari deild'
'Fyrir mér er hann einn af allra bestu leikmönnunum í þessari deild'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðshópurinn fyrir komandi vináttuleik gegn Mexíkó var tilkynntur í gær. Arnar Gunnlaugsson valdi 20 manna hóp fyrir æfingaleik sem fram fer ytra aðfaranótt 26. febrúar. Leikurinn er spilaður utan alþjóðlegs landsleikjaglugga og því þurfa félög að gefa KSÍ leyfi fyrir því að velja leikmenn sína. Átján leikmenn spila í Bestu deildinni, einn í Lengjudeildinni og einn í sænsku úrvalsdeildinni.

Aldurssamsetningin á hópnum vakti athygli, fleiri leikmenn eru fæddir 1990 eða fyrr heldur en eftir 2001. Eftir nokkur samtöl við aðila tengda íslenska boltanum er Kjartan Kári Halldórsson (2003) sá leikmaður sem flestir tala um að hafi verið litið framhjá. Kjartan skoraði sex mörk og lagði upp tíu á síðasta tímabili.

Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór VIðarsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá FH, en Kjartan Kári er einmitt leikmaður FH.

Hefði viljað sjá fleiri FH-inga í hópnum
„Mín persónulega skoðun er að mér finnst þetta val frekar skrítið, mér finnst skrítið að fara með svona gamalt landslið út. Með algjörum FH-gleraugum finnst mér að Kjartan Kári hefði átt að vera þarna og ég hefði viljað sjá Tómas Orra (Róbertsson) og Ísak Óla (Ólafsson) þarna inni líka," segir Davíð.

Tómas Orri er miðjumaður sem fæddur er 2004 og var í stóru hlutverki hjá FH á síðasta tímabili. Ísak Óli er miðvörður sem fæddur er 2000 og hefur verið í lykilhlutverki hjá FH síðustu tímabil. Kjartan Kári er vinstri kantmaður. Birnir Snær Ingason (1996) og Hallgrímur Mar Steingrímsson (1990) eru á meðal leikmanna í hópnum sem spila á vinstri kantinum.

Arnar telur Birni og Hallgrím væntanlega standa Kjartani Kára framar, þú ert ósammála því, eða hvað?

„Ég sé ekki marga kantmenn í þessari deild standa Kjartani Kára framar, fyrir mér er hann einn af allra bestu leikmönnunum í þessari deild. Mér finnst óskiljanlegt að hann sé ekki í þessum hóp. Ég held að maður verði aldrei sammála öllu í hópunum sem landsliðsþjálfarinn velur. Ég var ekki einu sinni alltaf sammála hópnum sem bróðir minn (Arnar Þór Viðarsson) valdi. Mér fannst mjög leiðinlegt þegar ég las þetta að sjá að Kjartan væri ekki þarna, en svona er þessi bransi."

Hefur þú eitthvað hitt hann eftir þetta?

„Ég hitti hann já, en ræddi þetta ekkert við hann. Hann var nokkuð léttur, en ég held að hann sé samt mjög svekktur að hafa ekki verið valinn."

Hvað sagði Arnar um Kjartan?
Landsliðsþjálfarinn tjáði sig um Kjartan Kára í viðtali við Fótbolta.net í gær.

„Af öllum þeim stöðum sem var hægt að velja var mesti lúxusinn í kant- og hálfsvæðisstöðunni. Það var mjög gaman, því ég er mjög hrifinn af kantmönnum og Kjartani. Ég þekki Birni (Snæ Ingason) vel. Hann virkar ferskur núna og var ferskur í vetur. Því miður dettur Aron Sig út úr hópnum og Hallgrímur Mar kemur í stað fyrir hann," sagði Arnar.

Hefði viljað sjá fleiri yngri leikmenn
Hvað finnst Davíð heilt yfir um valið og aldurssamsetninguna?

„Það er það sem manni finnst skrítið við valið. Ég get alveg skilið að þú viljir vera með reynda menn inn á milli, mér finnst það mjög eðlilegt. En mér hefði fundist þetta vera gott tækifæri til þess að gefa fleirum af U21 landsliðsmönnunum sem spila á Íslandi tækifæri til að spila A-landsleik. Bæði upp á upplifunina og að landsliðsþjálfarinn gæti kannski séð hvort það væri styttra í einhverja af þeim en menn héldu fyrir. Ég hefði viljað sjá þennan hóp með fleiri ungum leikmönnum sem gætu orðið landsliðsmenn í framtíðinni. Ég veit að það er mjög stórt skref að ætla fara úr Bestu deildinni á Íslandi og í það að verða A-landsliðsmaður í fótbolta, en ég hefði haldið að það væri tækifæri til að blóðga örlítið fleiri á þessum tímapunkti."

Arnar talar um að hann vilji ná í úrslit í Mexíkó. Finnst þér það skrítið?

„Nei, mér finnst það ekkert skrítið. En ég held að hann hefði alveg getað valið mjög sterkt lið með örlítið fleiri yngri leikmenn innanborðs. Ég veit ekki hvaða lið Mexíkó mætir með, maður gerir sér ekki alveg grein fyrir styrkleikanum á þeirra liði, en þeir verða örugglega með fínasta lið. Ég skil að þú reynir að velja lið sem þú telur að geti náð í úrslit, en ég held að það hefði verið vel mögulegt að velja lið með örlítið fleiri yngri leikmönnum sem hefði allavega getað sýnt góða frammistöðu."

Baldur Kári með mjög hátt þak
Einn leikmaður FH er í landsliðshópnum. Það er miðjumaðurinn Baldur Kári Helgason. Baldur var byrjunarliðsmaður hjá FH á síðasta tímabili og á að baki fjórtán leiki fyrir yngri landsliðin, þar af átta fyrir U21.

Hann hefur ekki fengið mikið umtal, hvað getur þú sagt um hann sem leikmann?

„Hann lætur kannski ekki mikið fyrir sér fara. Hann hefur tekið risastórt skref undanfarin tvö ár. Hann kom aðeins inn í þetta '24 og svo eignaði hann sér stöðu inn á miðjunni á síðasta tímabili. Hann getur leyst vinstri bakvörðinn líka mjög vel. Hann er ótrúlega mikill íþróttamaður, fljótur og sterkur. Hann er ennþá að taka miklum framförum. Hann stendur alltaf fyrir sínu og þakið hans er mjög hátt (getur náð mjög langt)."

„Sem miðjumaður er hann meira varnarsinnaður, hann er með mjög mikla hlaupagetu. Sem miðjumaður væri maður til í að sjá hann bæta við fleiri mörkum í leik sinn. Sem bakvörður er hann mjög sóknarsinnaður, kraftmikill og getur verið upp og niður kantinn í 90 mínútur og lengur ef þess þarf. Það er engin spurning að hann á bæði eftir að standa sig mjög vel í þessu verkefni og svo erum við vissir um að hann eigi eftir að spila mjög stórt hlutverk hjá okkur í ár,"
segir Davíð.
Athugasemdir
banner
banner