10.03.22 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danny El Hage verður markvörður KFA (Staðfest)

Danny El Hage.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danny El Hage.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýstofnað Knattspyrnufélag Austfjarða er búið að finna sér markvörð fyrir komandi leiktíð.
Í markinu verður Danny El Hage. Hann er 27 ára gamall markvörður sem hefur frá 2020 gegnt stöðu markvarðar hjá Leikni Fáskrúðsfirði.
Danny, sem er af pólsku og líbansku bergi brotinn, spilaði bæði með Fáskrúðsfirðingum í næst efstu deild og 2. deild. Hann lék átta leiki í 2. deild í fyrra.
Hann er núna búinn að fá félagaskipti aftur til Leiknis og kemur til með að spila með KFA í sumar.
Fjarðabyggð og Leiknir Fáskrúðsfirði sameinuðust eftir síðasta tímabil og mun nýtt sameiginlegt félag heita Knattspyrnufélag Austfjarða. Nýja liðið mun spila í 2. deild karla og verður Brynjar Skúlason þjálfari þeirra.