Fotbolti.net
10.04.21 - 15:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Crystal Palace og Chelsea: Pulisic og Hudson-Odoi byrja

Pulisic byrjar.

Pulisic byrjar.

Canon

Mynd: Getty Images

Í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni mætast Chelsea og Crystal Palace á Selhurst Park.

Chelsea tapaði um síðustu helgi á Brúnni gegn West Brom en fór með sigur af hólmi gegn Porto á útivelli í Meistaradeildinni í miðri viku. Chelsea er í fimmta sæti deildarinnar og Palace í 13. sæti.
Roy Hodgson, stjóri Palace, gerir enga breytingu á byrjunarliði sínu frá síðasta leik gegn Everton sem endaði með 1-1 jafntefli.

Það eru þrjár breytingar á liði Chelsea frá sigrinum á Porto. Kurt Zouma kemur í vörnina fyrir Andreas Christensen, og þá koma Christian Pulisic og Callum Hudson-Odoi inn fyrir Reece James og Timo Werner.

Byrjunarlið Chelsea: Mendy, Rudiger, Zouma, Azpilicueta, Hudson-Odoi, Chilwell, Jorginho, Kovacic, Mount, Pulisic, Havertz.
(Varamenn: Kepa, Alonso, Kante, Abraham, Werner, Giroud, Ziyech, James, Emerson)

Byrjunarlið Crystal Palace: Guaita, Ward, Van Aanholt, Cahill, Kouyate, Riedewald, Milivojevic, Eze, Ayew, Zaha, Benteke.
(Varamenn: Butland, Dann, Townsend, Mateta, Schlupp, McCarthy, Mitchell, Kelly, Rak-Sakyi)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.