„Þá verður hann að dæma þrjú víti í hverjum einasta leik"

Þorri Mar Þórisson

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þorri Mar Þórisson

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA og KR skildu jöfn 1-1 í fyrsta leik í Bestu deildinni í sumar á Greifavellinum á Akureyri. Þorri Mar Þórisson markaskorari KA var til viðtals hjá Fótbolta.net eftir leikinn.
„Fyrsti leikur er alltaf erfiður, spennustigið frekar hátt hjá báðum liðum og mikið af mistökum. Mér fannst við byrja leikinn mjög vel en í seinni hálfleik kom kafli þar sem KR var með yfirhöndina og við vorum aðeins eftir á. Svo vorum við að komast inn í leikinn og þá fáum við á okkur víti," sagði Þorri Mar.
KR fékk vítaspyrnu þegar Kristján Flóki Finnbogason féll í teignum eftir viðskipti við Þorra.
„Það var vissulega snerting en mér fannst þetta 'soft' en ef línan er þarna þá er það bara hans mál en þá verður hann að dæma þrjú víti í hverjum einasta leik. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem það kom snerting inn í teig en Kristján Flóki gerir þetta vel, nær að gera mikið úr þessu," sagði Þorri.
Þorri jafnaði metin í uppbótartíma þegar hann fór inn á teiginn frá hægri kanntinum og setti boltann í fjærhornið. Nökkvi Þeyr, bróðir hans, skoraði ófá mörkin síðasta sumar með svipuðum hætti.
„Ég er kominn með hárband og styttra hár, það er kannski eitthvað í því," sagði Þorri brosandi.
„Ég náði að redda rassgatinu á sjálfum mér með því að setja eitt mark þarna í lokin."
KA menn gera þá kröfu að vinna alla leiki á heimavelli.
„Þetta á að vera völlur þar sem er erfitt að sækja stig. Það er hægt að segja að ef við hefðum skorað alveg í byrjun þá hefði þetta þróast aðeins öðruvísi en miðað við hvernig leikurinn þróaðist þá getum við bara verið sáttir," sagði Þorri.







