Fotbolti.net
10.04.24 - 20:38
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjubikar kvenna: Jafnt í Kópavogi

Lengjubikar kvenna: Jafnt í Kópavogi
Canon

Mynd: HK

Kvennaboltinn
HK 1 - 1 ÍA
1-0 Asha Nikole Zuniga ('12 )
1-1 Thelma Björg Rafnkelsdóttir ('48 )
HK og ÍA áttust við í Lengjubikar kvenna í dag og tóku heimakonur í Kópavogi forystuna eftir tólf mínútna leik, þegar Asha Nikole Zuniga setti boltann í netið.

HK leiddi í leikhlé en Skagakonur svöruðu fyrir sig í upphafi síðari hálfleiks með jöfnunarmarki frá Thelmu Björgu Rafnkelsdóttur og urðu lokatölur leiksins 1-1.

HK er aðeins með fjögur stig eftir fimm umferðir á meðan ÍA er í öðru sæti, með níu stig eftir sex leiki.

Afturelding er svo gott sem búin að vinna B-deildina þar sem ÍA og ÍR eiga ekki lengur möguleika á toppsætinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.