Fotbolti.net
10.04.24 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Þurfa meiri tíma til að ganga frá kaupum á Everton

Þurfa meiri tíma til að ganga frá kaupum á Everton
Canon

Mynd: EPA

Fjárfestingarfyrirtækið 777 Partners er að reyna að ganga frá kaupum á enska úrvalsdeildarfélaginu Everton en er að lenda í erfiðleikum með fjármögnun.
Everton er í miklum fjárhagsörðugleikum þar sem félagið er að byggja nýjan leikvang og þurfa 777 Partners að verða sér úti um hundruði milljóna punda til að ganga frá eigendaskiptunum.

Sky News greinir frá því að stjórnendur 777 Partners búist við því að ljúka fjáröflun sinni á næstu vikum og munu eigendaskiptin þá geta gengið í gegn í lok maí.

Það eru þó spurningarmerki á lofti um hvort þau áform gangi upp, þar sem fjárfestingarfyrirtækið skuldar háar upphæðir í lán og hefur verið gagnrýnt fyrir bága fjárhagsstöðu annarra íþróttafélaga í sinni eigu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.