Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 10. maí 2022 11:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Cyera aftur í Val (Staðfest)
Cyera er komin aftur
Cyera er komin aftur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cyera Hintzen er aftur gengin í raðir Vals en hún kom til félagsins í júlí í fyrra og varð Íslandsmeistari með liðinu síðasta haust.

Cyera er 24 ára gamall sóknarmaður og skoraði fjögur mörk í tíu leikjum á síðasta tímabili.

Í vetur lék hún með Perth Glory í Ástralíu en er komin með leikheimild með Val og gæti verið með liðinu í næsta leik liðsins, þegar Valur mætir Stjörnunni á föstudag.

Cyera lék níu deildarleiki með Glory og skoraði fimm mörk ásamt því að leggja upp eitt.
Athugasemdir
banner