Stjörnukonan, Sylvía Birgisdóttir, mun spila á láni hjá Haukum í Lengjudeildinni í sumar.
Sylvía, sem er fædd árið 2001, spilaði með Tindastóli í efstu deild á síðasta tímabili og lék þá 12 leiki og gerði eitt mark en hún snéri aftur í Stjörnuna eftir tímabilið.
Hún hefur einnig leikið fyrir Álftanes og Skínandi og á 23 meistaraflokksleiki í heildina, þar af einn fyrir Stjörnuna.
Stjarnan hefur nú lánað Sylvíu til Hauka út þetta tímabil og verður hún því væntanlega klár í slaginn fyrir leikinn gegn Grindavík í 2. umferð Lengjudeildarinnar á morgun.
Haukar töpuðu fyrir nágrönnum þeirra í FH, 4-0, í fyrstu umferð deildarinnar.
Athugasemdir