Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 21:34
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: PSG með níu fingur á titlinum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Risaveldi Paris Saint-Germain er komið með níu fingur á Frakklandsmeistaratitilinn eftir sigur gegn Brest í kvöld.

PSG stjórnaði ferðinni allan leikinn en tókst ekki að skora framhjá agaðri vörn Brest fyrr en á 82. mínútu þegar Désiré Doué tók til sinna ráða og setti boltann í netið eftir frábært einstaklingsframtak.

Doué fékk boltann við vítateigslínuna á vinstri vængnum og fór nokkuð auðveldlega framhjá tveimur varnarmönnum áður en hann lét vaða með lágu og hnitmiðuðu skoti úr D-boganum sem markvörður Brest réði ekki við.

Þetta reyndist eina mark leiksins svo PSG er með sex stiga forystu fyrir síðustu tvær umferðirnar. Lærlingar Luis Enrique eru því svo gott sem búnir að vinna titilinn þar sem þeir eru með talsvert betri markatölu heldur en Lens sem situr í öðru sæti.

Til gamans má geta að Lens tekur á móti PSG í næstu umferð. Þar þurfa heimamenn að minnsta kosti fimm marka sigur til að eiga einhverja vonarglætu um að stela titlinum.

Í öðrum leikjum kvöldsins var Hákon Arnar Haraldsson á sínum stað í byrjunarliði Lille sem vann á útivelli gegn AS Monaco.

Lille er í frábærri stöðu fyrir lokaumferðina. Hákon og félagar geta tryggt sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar með sigri gegn fallbaráttuliði Auxerre í lokaumferðinni. Það verður afar erfiður leikur þar sem Auxerre gæti þurft sigur til að forðast umspil og því er mikið undir fyrir bæði lið.

Lille var í fjórða sæti fyrir leiki kvöldsins en heppnin var með þeim þegar Lyon tapaði óvænt á útivelli gegn Toulouse. Lille stekkur því upp í þriðja sætið og er þátttaka liðsins í Meistaradeild Evrópu í höndum leikmanna.

Auxerre vann gríðarlega mikilvægan úrslitaleik gegn Nice í kvöld er liðin mættust í fallbaráttunni. Aðeins eitt stig skilur þrjú lið af í fallbaráttu deildarinnar þar sem Nice, Auxerre og Le Havre eru að berjast um að enda ekki í umspilssætinu. Til gamans má geta að Nice spilar við Lens í úrslitaleik franska bikarsins og gæti því orðið fyrsta Ligue 2 liðið til að spila í Evrópudeildinni ef það fellur.

Þá er líka fjör í evrópubaráttunni. Monaco og Marseille eru í harðri baráttu um sjötta sætið sem mun annað hvort gefa þátttökurétt í Sambandsdeildina eða Evrópudeildina eftir því hvaða lið vinnur bikarúrslitin. Aðeins tvö stig skilja Rennes, Lyon og Lille að í meistaradeildarbaráttunni.

PSG 1 - 0 Brest
1-0 Desire Doue ('82)

Monaco 0 - 1 Lille
0-1 Denis Zakaria ('72, sjálfsmark)

Toulouse 2 - 1 Lyon

Le Havre 0 - 1 Marseille

Rennes 2 - 1 Paris FC

Metz 0 - 4 Lorient

Auxerre 2 - 1 Nice

Angers 1 - 1 Strasbourg


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner