Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 10. maí 2026 23:39
Ívan Guðjón Baldursson
Gordon var aftur ónotaður varamaður
Gordon hefur skorað 17 mörk í 46 leikjum á tímabilinu, þar af 10 mörk í 12 leikjum í Meistaradeild Evrópu.
Gordon hefur skorað 17 mörk í 46 leikjum á tímabilinu, þar af 10 mörk í 12 leikjum í Meistaradeild Evrópu.
Mynd: EPA
Jamie O'Harar í leik með Tottenham á sínum tíma.
Jamie O'Harar í leik með Tottenham á sínum tíma.
Mynd: EPA
Anthony Gordon var ónotaður varamaður í 1-1 jafntefli Newcastle gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag og eru orðrómar um yfirvofandi félagaskipti í sumar að stigmagnast.

Gordon, 25 ára, missti af síðustu tveimur leikjunum í apríl vegna meiðsla en er núna búinn að vera ónotaður varamaður báða leikina í maí.

Gordon er sagður vera eftirsóttur af ýmsum stórveldum víða um Evrópu, þar á meðal er FC Bayern.

„Hann er nýkominn aftur úr meiðslum og ég er búinn að vera ánægður með frammistöðu byrjunarliðsins í síðustu leikjum. Ég sé enga þörf á því að gera breytingar á liðinu," svaraði Howe þegar hann var spurður út í bekkjarsetu Gordon.

Jamie O'Hara, fyrrum leikmaður Tottenham og núverandi fótboltasérfræðingur hjá Sky Sports, telur þetta vera skýrt merki um að Gordon verði seldur í sumar.

„Hann fer í sumar ef Howe notar hann ekki. Mér líkar vel við Gordon sem leikmann en það er eitthvað skrýtið í gangi. Ef Howe notar hann ekki á þessum tímapunkti tímabilsins finnst mér líklegt að leikmaðurinn verði seldur," segir O'Hara.

Newcastle siglir lygnan sjó í neðri hluta úrvalsdeildarinnar eftir mikið vonbrigðatímabil.

„Þeir eru ekki nógu góðir. Eddie Howe þarf að skoða hópinn og spyrja sig hvort hann sé búinn að ná því besta úr leikmönnunum sem hann hefur til umráða.

„Leikmenn Newcastle voru ekki góðir í dag. (Yoane) Wissa var aftur mjög slakur og (Nick) Woltemade gerði í raun ekki neitt."


   08.05.2026 12:09
Með hausinn á Newcastle þrátt fyrir áhuga Bayern

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner