Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 10. maí 2026 19:22
Ívan Guðjón Baldursson
Nuno ósáttur með ósamræmi í dómgæslu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Nuno Espírito Santo þjálfari West Ham var sársvekktur eftir tap á heimavelli gegn Arsenal í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Tapið þýðir að West Ham gæti verið svo gott sem fallið úr deildinni ef Tottenham vinnur heimaleik gegn Leeds United annað kvöld.

Staðan var markalaus á London Stadium allt þar til Leandro Trossard skoraði á 83. mínútu. Hamrarnir komust nálægt því að jafna í uppbótartíma en tókst ekki. Þeir komu boltanum í netið eftir hornspyrnu en markið ekki dæmt gilt eftir athugun í VAR-herberginu.

„Þetta var góð frammistaða hjá okkur og ég er stoltur af leikmönnunum en svekktur að hafa ekki náð í úrslitin sem við þurftum. Ég er í uppnámi eftir lokamínúturnar en samt stoltur af því hversu mikið strákarnir reyndu að ná í þetta jöfnunarmark," sagði Nuno að leikslokum.

„Ég á eftir að sjá betri endursýningar en það sem pirrar mann er ósamræmið í dómaraákvörðunum. Þegar það kemur að föstum leikatriðum er mjög erfitt að vita hvað er flokkað sem brot í dag og hvað ekki. Það þurfa að vera skýrari reglur varðandi hvað má gera og hvað má ekki gera. Þetta er pirrandi útaf því að stundum má þetta og stundum ekki."

Sjáðu atvikið

West Ham á eftir að heimsækja Newcastle United í næstu umferð áður en liðið lýkur tímabilinu á heimavelli gegn Leeds.

„Við verðum að sýna svona frammistöðu í næstu leikjum. Við munum gera allt í okkar valdi til að sigra þá, það er undir okkur komið að svara með að ná í jákvæð úrslit. Það eru tveir leikir eftir og við vitum að það getur allt gerst.

„Því miður þá er það ekki í okkar höndum hvort við föllum eða ekki. Eina sem við getum gert er að sigra okkar leiki. Við erum partur af risastóru félagi og það er okkar skylda að leggja allt í sölurnar þessa síðustu tvo leiki."


   10.05.2026 17:33
England: Arsenal rétt marði West Ham

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner