Matthijs de Ligt, varnarmaður Ajax, er mjög heitur biti. De Ligt hefur verið orðaður við öll stærstu félög heims, PSG, Juventus, Liverpool, Manchester United og Barcelona til þess að nefna einhver.
Stjórnarmenn hjá PSG hafa mikla trú á því að Hollendingurinn ungi endi í París. PSG er sagt tilbúið að bjóða hæstu launin, um 350 þúsund pund á viku.
Stjórnarmenn hjá PSG hafa mikla trú á því að Hollendingurinn ungi endi í París. PSG er sagt tilbúið að bjóða hæstu launin, um 350 þúsund pund á viku.
De Ligt var spurður um framtíð sína eftir tap Hollands gegn Portúgal í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar í gærkvöldi. Þar sagði hann að hann vissi ekki hvar hann myndi spila og að hann væri á leið í kærkomið frí. Eina sem hann hafði að segja var að hann vildi fá að spila reglulega í liðinu sem hann færi í.
Manchester United er sagt vera með Kalidou Koulibaly, miðvörð Napoli í bakhöndinni ef de Ligt ákveður að fara annað en til Rauðu Djöflanna.
Athugasemdir