Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. júní 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Benfica selur Pedrinho til Shakhtar (Staðfest)
Pedrinho í leik með Benfica
Pedrinho í leik með Benfica
Mynd: EPA
Úkraínska stórveldið Shakhtar Donetsk hefur fest kaup á brasilíska leikmanninum Pedrinho frá Benfica.

Pedrinho er 23 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður en hann gekk til liðs við Benfica frá Corinthians á síðasta ári.

Hann náði ekki að finna sig hjá Benfica á leiktíðinni sem var að klárast og ákvað portúgalska félagið því að losa sig við hann.

Shakhtar hefur nú gengið frá kaupum á honum en félagið borgar 18 milljónir evra fyrir hann.

Pedrinho á 14 leiki að baki fyrir U23 ára lið Brasilíu og hefur hann skorað 3 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner