Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. júní 2021 20:04
Victor Pálsson
Buendia orðinn leikmaður Aston Villa (Staðfest)
Mynd: Ajax
Aston Villa hefur staðfest komu miðjumannsins Emiliano Buendia en hann kemur til félagsins frá Norwich.

Villa staðfesti það fyrr í vikunni að félagið væri búið að ná samkomulagi við Norwich og átti eftir að semja við leikmanninn um kaup og kjör.

Það er nú klappað og klárt en Villa borgar í kringum 35 milljónir punda fyrir argentínska leikmanninn.

Buendia er dýrasti leikmaður í sögu Villa en hann er 24 ára gamall og lék vel með Norwich í vetur.

Buendia skoraði 15 mörk og lagði upp önnur 17 er Norwich tryggði sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal sýndi leikmanninum einnig áhuga en var ekki reiðubúið að borga eins háa upphæð og Villa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner