Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 10. júní 2021 21:24
Victor Pálsson
David Wagner nýr stjóri Young Boys (Staðfest)
Mynd: Getty Images
David Wagner, fyrrum stjóri Huddersfield, er mættur til Sviss og er nýr þjálfari Young Boys þar í landi.

Þessar nokkuð óvæntu fréttir voru staðfestar í dag en Wagner var talinn líklegastur til að taka við West Bromwich Albion.

Viðræður við West Brom sigldu hins vegar í strand og er Chris Wilder að taka við keflinu á Hawthorns.

Wagner gerði góða hluti með Huddersfield frá 2015 til 2019 og fór þaðan til Schalke í Þýskalandi.

Gengið var ekki nógu gott í heimalandinu og eftir 18 leiki án sigurs var Wagner rekinn þann 27. september í fyrra.

Nú mun Wagner reyna fyrir sér í Sviss en Young Boys varð meistari þar í landi á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner