Eftir leik Þróttar og Njarðvíkur í Lengjudeild karla kom upp leiðinlegt atvik þar sem tveir stuðningsmenn Þróttar létu ókvæðisorð falla um Oumar Diouck, leikmann Njarðvíkur. Í viðtali við Fótbolta.net sagði þjálfari Njarðvíkur, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, eftirfarandi:
„Leiðinlegt atvik. Tvö góð lið búin að spila hörku fótbolta og allir sáu það að bæði lið voru að gefa allt í þetta. Þegar við erum á leið niður í klefa þá eru einhverjir aðilar sem að segja bara mjög heimska hluti við leikmann minn sem er með öðruvísi húðlit en þeir."
„Það myndast eitthvað kaos út af því náttúrulega þar sem að mínir menn heyrðu þetta margir og þeir eru alls ekki sáttir með það að það sé verið að segja einhverja svona hluti á Íslandi finnst mér og á þessum stað hjá Þrótti. Auðvitað fóru þeir bara að reyna aðstoða hann í þessu og reyna að koma einhverri ró á þetta út af því að þetta á bara ekki að gerast í fótbolta hvort sem það sé á Íslandi eða einhvers staðar annars staðar," sagði þjálfarinn eftir leikinn.

Fótbolti.net fór á stúfana og hleraði báðar hliðar málsins. Meðal annars var rætt við leikmanninn sjálfan.
Niðurstaðan úr þeim samtölum er að ekki var um rasísk ummæli að ræða.
DIouck var kallaður glæpamaður, sem er alls ekki fallegt orðalag, en Þróttarar voru ekki sáttir við hegðun sengegalska Belgans innan vallar í leiknum.
Njarðvíkingar eru ósáttir við vöntun á gæslu þegar leikmenn voru á leið inn í klefa, Þróttarar hafa að sögn leikmannsins beðist afsökunar á því.
Athugasemdir