Bayern München gæti gert óvænt tilboð í Rashford - Liverpool hafnaði fyrirspurn Bayern um Díaz og ætlar ekki að selja hann
Þurfum að vinna heimakonur - „Þetta eru allt heimsklassa lið"
Fyrstu mínútur Kötlu á stórmóti - „Fokking hell maður"
Karólína Lea: Ég hef aldrei séð hana jafn hvíta í framan
Sveindís: Spilum ekki fótbolta í fyrri hálfleik
Ingibjörg: Auðvelt að segja að þetta eigi að vera venjulegt
Cecilía segir hafa verið stress í liðinu - „Ætlum að vinna næstu tvo“
„Þetta verkefni sem hún hefur gengið í gegnum er ótrúlegt"
Foreldrar Áslaugar Mundu á sínu þriðja EM - „Ekki hægt að sleppa þessu“
Bryndís mætt sem stuðningsmaður: Tók tíma að sætta sig við það
Halla forseti mætt til Sviss: Ég hef óbilandi trú á liðinu
Rúnar eiginmaður Natöshu: Ótrúlegt stolt fyrir okkar fjölskyldu
Rob Holding: Mættur til að styðja Ísland og Sveindísi
Kiddi Freyr: Ég kann þetta ennþá
Jökull: Ætluðum okkur alla leið en gerðum ekki nóg
Túfa: Lagt mikla vinnu til að verða liðið sem keppir aftur um titla
Óskar: Alltaf gaman að vera í besta liðinu á Íslandi
Bjarni Jó: Mikil reisn í þessu hjá Jóni Daða
Formaðurinn í skýjunum: Stærstu skipti í sögu félagsins
Tómas Þórodds: Jón Daði ekta karakter til að koma heim
Ítarlegt viðtal við Jón Daða - „Sú tilhugsun sat ekki nægilega vel í mér"
   þri 10. júní 2025 21:48
Haraldur Örn Haraldsson
Willum: Við fengum fínustu færi og vorum óheppnir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Svekkjandi, við vildum ná í betri úrslit en þetta þannig ég er bara svekktur," sagði Willum Þór Willumsson leikmaður íslenska landsliðsins eftir 1-0 tap gegn Norður-Írum í kvöld.


Lestu um leikinn: Norður-Írland 1 -  0 Ísland

Ísland byrjaði leikinn vel en tókst ekki að skora. Eftir þessa byrjun rann hinsvegar leikurinn úr höndnum Íslands.

„Mér fannst við byrja leikinn nokkuð sterkt, við héldum vel í boltann, og náðum að þrýsta þeim niður. Þannig það var svekkjandi hvernig við leyfum þeim að taka yfir í fyrri hálfleik," sagði Willum.

Norður-Írar sýndu mikinn hug þegar þeir komust inn í leikinn og voru ofan á í baráttunni eftir það.

„Mér fannst fyrstu 25 mínúturnar við vera sterkari. Svo leyfum við þeim að komast á bragðið og þá tekur völlurinn við sér og þeir fá 'momentum'. Svo er það óþarfi að fara marki undir inn í hálfleik," sagði Willum.

Norður-Írar missa mann af velli snemma í seinni hálfleik en Ísland náði ekki að nýta sér að vera manni fleirri.

„Við vorum einum fleiri í einhverjar, ég man ekki, 30 mínútur. Við fengum fínustu færi og vorum óheppnir. Það var bjargað á línu einu sinni, þannig óheppnir að hafa ekki náð að jafna þetta," sagði Willum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner