Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 10. júní 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fótboltaskóli Real Sociedad á Meistaravöllum
Mynd: KR
Real Sociedad verður með fótboltaskóla á Meistaravöllum dagana 18.-20. júní í samstarfi við KR.

Stelpur og strákar fædd árin 2012 til 2014 geta skráð sig í fótboltaskólann og fá allir þátttakendur varatreyju Real Sociedad frá því í fyrra (24/25) og mat í lok æfingar.

Æfingar eru frá 12:00 til 14:00 auglýsta daga og er aðgangseyrir 30 þúsund krónur. Matur og treyja eru innifalin í verðinu.

Þjálfarar frá Real Sociedad munu sjá um námskeiðið ásamt yngri flokka þjálfurum KR. Orri Steinn Óskarsson, leikmaður Real Sociedad og fyrirliði íslenska landsliðsins, mun mæta á námskeiðið til að spjalla við krakkana.

„Fótboltaskólinn er tilvalið tækifæri fyrir metnaðarfulla krakka til verða enn betri í fótbolta undir handleiðslu reyndra þjálfara frá spænsku bikarmeisturunum!" segir meðal annars í auglýsingu frá KR.

Skráning fer fram hér, eða í smáforritinu Abler.
Slapp
banner
banner