England spilaði sinn síðasta leik fyrir HM í kvöld þegar liðið mætti Kosta Ríka í Orlando. Leikurinn frestaðist um klukkutíma þar sem það var úrhellisrigning, þrumur og eldingar.
Leikurinn hófst klukkan 21 og Declan Rice kom Englandi yfir snemma leiks eftir sendingu frá Anthony Gordon út í teiginn.
England fékk vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks þegar Gordon féll í teignum en dómarinn skoðaði atvikið í VAR og fannst hann detta full auðveldlega og dró dóminn til baka.
Enska liðið hélt í boltann nánast allan leikinn og Kosta Ríka komst hvorki lönd né strönd. England fékk síðan vítaspyrnu þegar boltinn fór í höndina á varnarmanni Kosta Ríka og Gordon skoraði úr vítinu.
Það var síðan Aston Villa samvinna í síðasta marki liðsins. Morgan Rogers átti skot sem markvörður Kosta Ríka varði út í teiginn og Ollie Watkins var fljótur að átta sig og skoraði.
Þá vann Portúgal sigur á Nígeríu þar sem Pedro Neto kom liðinu yfir en Akor Adams jafnaði metin. Francisco Conceicao tryggði Portúgal sigurinn.
Cristiano Ronaldo spilaði rúman klukkutíma og fékk tvö dauðafæri. Hann komst einn í gegn í upphafi leiks eftir sendingu frá Nelson Semedo en skaut viðstöðulaust framhjá. Hann var síðan aleinn inn á teignum í upphafi seinni hálfleiks en hitti boltann mjög illa.
Portugal 2 - 1 Nigeria
1-0 Pedro Neto ('23 )
1-1 Akor Adams ('37 )
2-1 Francisco Conceicao ('75 )
England 3 - 0 Costa Rica
1-0 Declan Rice ('9 )
2-0 Anthony Gordon ('68 , víti)
3-0 Ollie Watkins ('87 )

