26.07.26 - 15:45
Brynjar Ingi Erluson
Segja Leipzig hafa samþykkt tilboð Real Madrid - Gerir fimm ára samning

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Real Madrid hefur náð samkomulagi við þýska félagið RB Leipzig um kaup á vængmanninum Yan Diomande. Þetta segja Alex Crook og Ben Jacobs hjá talkSPORT.
Fílabeinsstrendingurinn hafði náð munnlegu samkomulagi við Evrópumeistara Paris Saint-Germain um kaup og kjör, en nokkrar vikur eru síðan hann valdi frekar að fara þangað en til Liverpool.
Á síðustu sólarhringum hafa fleiri félög bæst inn í baráttuna þar sem PSG hefur ekki verið reiðubúið að borga það sem Leipzig vill fá fyrir hann.
Real Madrid kom inn, náði munnlegu samkomulagi við Diomande og lagði fram 100 milljóna evra tilboð sem Leipzig hafnaði, en Crook og Jacobs segja nú samkomulag í höfn.
Kaupverðið kemur ekki fram en áætlað er að hann verði þriðji dýrasti leikmaður í sögu Real Madrid á eftir Eden Hazard og Jude Bellingham.
Diomande, sem er 19 ára gamall, hefur samþykkt fimm ára samning hjá félaginu.
Fílabeinsstrendingurinn fer hratt upp metorðastigann. Fyrir nokkrum árum var hann að spila í DME-akademíunni í Bandaríkjunum, en hann fór þaðan til Leganes á Spáni áður en hann samdi við Leipzig á síðasta ári.