Kólumbía 3 - 2 Perú
0-1 Yoshimar Yotun ('45)
1-1 Juan Cuadrado ('49)
2-1 Luis Diaz ('66)
2-2 Gianluca Lapadula ('82)
3-2 Luis Diaz ('94)
0-1 Yoshimar Yotun ('45)
1-1 Juan Cuadrado ('49)
2-1 Luis Diaz ('66)
2-2 Gianluca Lapadula ('82)
3-2 Luis Diaz ('94)
Kólumbía og Peru áttust við í nótt í leik um þriðja sætið á Copa America.
Peru komst yfir á 45. mínútu en Juan Cuadrado jafnaði metin fyrir Kólumbíu á 49. mínútu. Luis Diaz kom síðan Kólumbíu yfir áður en Gianluca Lapadula jafnaði fyrir Peru þegar 8 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og það stefndi í framlengingu.
Luis Diaz kom hinsvegar Kólumbíumönnum í 3-2 þegar rúmar þrjár mínútur voru liðnar af uppbótartíma með skoti af rúmlega 20 metra færi og tryggði Kolumbíu bronsið á mótinu.
Brasilía og Argentína mætast í úrslitaleik mótsins á miðnætti í kvöld.
Athugasemdir