lau 10. júlí 2021 11:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jeffs tekur við kvennaliði ÍBV (staðfest)
Ian Jeffs hér með Helga Sigurðssyni þjálfara karlaliðsins
Ian Jeffs hér með Helga Sigurðssyni þjálfara karlaliðsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ian Jeffs tekur við kvennaliði ÍBV og mun stýra þeim út þetta tímabil.

Þetta staðfestir ÍBV í tikynningu á ibvsport.is. Jeffs verður áfram aðstoðarþjálfari karlaliðsins.

Birkir Hlynsson mun vera aðstoðarþjálfari en hann aðstoðaði Andra Ólafsson en þeir létu af störfum í lok júní síðastliðinn.

Tilkynning ÍBV:
Í dag skrifaði Ian David Jeffs undir samning við ÍBV sem felur í sér að hann tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna í knattspyrnu út yfirstandandi tímabil. Ásamt því að vera aðstoðarþjálfari karlaliðs félagsins.

Það er mikill fengur fyrir félagið að hafa mann með stórt ÍBV-hjarta líkt og Ian og þökkum við knattspyrnuráði karla, Helga Sig og Ian fyrir gott samstarf að lausn málsins.

Með Ian mun Birkir Hlynsson koma aftur inn sem aðstoðarþjálfari liðsins og væntum við góðs samstarfs þeirra á milli. Þeir munu mæta galvaskir í næsta leik.

Fyrir hönd knattspyrnuráðs kvenna, Sigurður O. Friðriksson.

ÁFRAM ÍBV
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner