Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. júlí 2021 18:31
Victor Pálsson
Nacho framlengir við Real (Staðfest)
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Nacho hefur skrifað undir nýjan samning við spænska stórliðið Real Madrid.

Þetta staðfesti spænska félagið fyrir helgi en Nacho er nú samningsbundinn félaginu til ársins 2023.

Nacho er fæddur árið 1990 en hann hefur spilað með Real allan sinn feril eða frá árinu 2011.

Leikmaðurinn hefur þó verið í töluverðu varahlutverki en tók þátt í 24 deildarleikjum á síðustu leiktíð.

Möguleiki er á að Raphael Varane sé á förum frá Real í sumar og vill félagið ekki missa Nacho á sama tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner