Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. júlí 2021 11:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tavares genginn til liðs við Arsenal (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur gengið frá sínum fyrstu kaupum í sumar en Nuno Tavares er genginn til liðs við félagið.

Tavares er 21 árs gamall Portúgali en hann kemur frá Benfica en verðmiðinn er talinn vera í kringum 8 milljónir punda.

Tavares er vinstri bakvörður sem lék 25 leiki fyri Benfica en hann þreytti frumraun sína í leik gegn Sporting Lisbon í portúgalska ofurbikarnum í ágúst 2019.

Tavares er mættur til London en hann mun koma til móts við nýju liðsfélagana sína þegar hann hefur lokið sóttkví.





Athugasemdir
banner