Fotbolti.net
10.08.20 - 15:05
Magnús Már Einarsson
Ítalski boltinn

Matuidi á leið í félagið hans Beckham

Matuidi á leið í félagið hans Beckham
Canon

Mynd: Getty Images

Franski landsliðsmaðurinn Blaise Matuidi er á leið til Inter Miami í MLS deildinni.

Inter Miami er í eigu David Beckham en Matuidi á aðeins eftir að standast læknisskoðun áður en hann skrifar undir hjá félaginu.

Hinn 33 ára gamli Matuidi átti ár eftir af samningi sínum hjá Juventus en hann náði að semja um starfslok hjá félaginu.
Matuidi kom til Juventus frá PSG árið 2017 en síðan þá hefur hann skorað átta mörk í 133 leikjum.

Hann varð þrívegis ítalskur meistari með Juventus auk þess að vinna bikarinn árið 2018.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.