Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 10. ágúst 2022 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bernardo Silva útilokar ekki félagsskipti
Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn sóknarsinnaði Bernardo Silva er eftirsóttur af Barcelona og hafa spænskir fjölmiðlar fjallað mikið um áhuga Xavi á leikmanninum.


Bernardo er mikilvægur hlekkur í liði Englandsmeistara Manchester City og gaf ESPN svar þegar hann var spurður út í orðróminn.

„Ég á í mjög opnu og heiðarlegu sambandi við Man City og félagið veit hvað ég vil. Ég er til í að vera áfram hérna en ég get ekki útilokað neitt," svaraði Bernardo.

„Mér líður mjög vel hér og ég mun alltaf virða þetta félag og gera mitt besta á vellinum. Við sjáum til hvað gerist en ég mun alltaf sýna Man City virðingu."

Það þykir nokkuð ljóst að Bernardo er spenntur fyrir tilhugsuninni um að spila fyrir Barca en hann er 28 ára gamall og á þrjú ár eftir af samningi sínum við City.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner