Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
Bragi Karl: Var ekki í hlutverkinu sem ég vildi vera í
Ingi Þór: Engir grínleikmenn að spila í minni stöðu hjá ÍA
„Fór í viðræður við fullt af klúbbum"
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Þriðji hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Annar hluti
Atvinnumaðurinn Logi Tómasson - Fyrsti hluti
Fékk Skagaelítuna á bakið - „Eflaust brotið einhver hjörtu hefði ég ekki komið“
Tekur við eftir að leikmenn neituðu að spila fyrir félagið
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
   mið 10. ágúst 2022 20:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Menn héldu að þeir gætu tekið þetta á töffaratempóinu"
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Ógeðslega sætt," sagði Nökkvi Þeyr Þórisson maður leiksins í 3-0 sigri KA gegn Ægi í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.


Lestu um leikinn: KA 3 -  0 Ægir

„Eina markmiðið var að vinna þennan leik og komast í undanúrslit. Þetta var erfið fæðing en hófst á endanum og ég er virkilega sáttur með að vera kominn áfram,"

Nökkvi segir að honum hafi fundist KA liðið mæta með hangandi haus inn í leikinn.

„Mér leið eins og menn hafi haldið að þeir gætu bara tekið þetta á töffaratempóinu og voru að tapa boltanum oft asnalega og héldu að við þurftum ekki að gefa okkur alla í þetta til að vinna, það sýndi sig að þeir voru ógeðslega fastir fyrir og í góðu standi. Við þurftum virkilega að reyna á okkur til að brjóta þá niður, það skilaði sér á endanum," sagði Nökkvi Þeyr og bætti við;

„Þegar við skiptum úr þessu töffaratempói yfir í að gefa okkur alla fram þá loksins opnaðist þetta og við brutum ísinn."


Athugasemdir
banner
banner
banner