Fotbolti.net
10.09.16 - 17:06
Jóhann Ingi Hafþórsson

Dóra María: Kannast ekki við að hafa orðið brjáluð

Auglýsing
Dóra María

Dóra María

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Við vorum flottar fyrsta hálftíman en verðum værukærar þegar við komumst í 2-0 og náum ekki upp eins góðu spili,\" sagði Dóra María Lárusdóttir eftir 2-1 sigur á ÍA í dag.

Dóra kom Val í 2-0 í fyrri hálfleik en ÍA minnkaði muninn í 2-1 og úr varð spennandi leikur.
„Við hleyptum þeim alltof mikið inn í leikinn í seinni hálfleik og þetta var orðið spennandi en ég er sátt við sigurinn.\"

Dóra María var valin í landsliðið á nýjan leik eftir fjarveru og sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari að hún hafi ekki verið sátt við að vera ekki valin þar á undan.

„Ég kannast nú ekki alveg við að hafa orðið brjáluð en það gott að vera komin til baka,\" sagði Dóra.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.