Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 10. september 2020 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Messi bestur í FIFA 21 - Þrír úr Liverpool í topp tíu
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Tölvuleikurinn FIFA 21 kemur út í byrjun október, nánar tiltekið þann 6. október næstkomandi.

EA Sports, framleiðandi leiksins, hefur gefið út hvaða leikmenn eru með hæstu einkunnir í leiknum.

Besti leikmaðurinn í tölvuleiknum vinsæla þetta árið er Argentínumaðurinn Lionel Messi. Hann fær 93 og næstur á eftir er Cristiano Ronaldo með 92.

Aðrir á topp tíu listanum eru Robert Lewandowski, Kevin de Bruyne, Neymar, Jan Oblak, Virgil van Dijk, Kylian Mbappe, Mohamed Salah og Sadio Mane.

Markverðirnir Alisson og Marc-Andre Ter Stegen eru einnig með 90 í einkunn en svo eru aðrir með minna.


Athugasemdir
banner
banner