Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. september 2020 08:30
Victor Pálsson
Tveir lykilmenn ekki með Chelsea á mánudag
Ben Chilwell.
Ben Chilwell.
Mynd: Chelsea
Chelsea verður án tveggja lykilmanna á mánudaginn er liðið spilar við Brighton í ensku úrvalsdeildinni.

Úrvalsdeildin hefst aftur á laugardag eftir stutt hlé og mun Chelsea spila við Brighton í fyrstu umferð.

Þeir Hakim Ziyech og Ben Chilwell verða ekki með Chelsea vegna meiðsla en það er The Athletic sem fullyrðir þær fregnir.

Báðir leikmennirnir komu til Chelsea í sumar en Ziyech kom frá Ajax og Chilwell var keyptur frá Leicester.

Útlit er þó fyrir að Timo Werner, Thiago Silva og Kai Havertz gætu spilað sinn fyrsta leik í treyju liðsins.

Athletic greinir frá því að bæði Chilwell og Zyiech verði frá í nokkrar vikur en sá fyrrnefndi hefur verið meira og minna meiddur síðan í júlí.

Athugasemdir
banner