Fotbolti.net
10.09.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

2. deild kvenna: Skoraði fernu í ellefu marka leik - Fengu á sig 123 mörk í sumar

ÍR-ingar unnu góðan sigur

ÍR-ingar unnu góðan sigur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Tveir leikir fóru fram í lokaumferðinni í B- og C-riðli 2. deildar kvenna í gær.
Afturelding vann sinn fimmta sigur í B-riðlinum þegar liðið lagði Dalvík/Reyni að velli, 2-1. Magðalena Ólafsdóttir braut ísinn á 21. mínútu en Emilía Eir Pálsdóttir jafnaði snemma í síðari hálfleik.

Adna Mesetovic tryggði Mosfellingum sigurinn undir lokin. Hún skoraði fimm mörk í úrslitakeppninni og tíu alls á tímabilinu að deildarkeppninni meðtalinni.

Afturelding endaði í 5. sæti deildarinnar með 38 stig, fleiri en toppliðin í A-riðlinum. Svekkjandi niðurstaða fyrir Mosfellinga eftir flott tímabil.

Í C-riðlinum pakkaði ÍR liði Smára saman, 9-2. Fyrirliðinn Steinunn Lind Hróarsdóttir stal senunni með fernu. Hún skoraði fyrst á 9. mínútu og bætti síðan þremur mörkum við á tíu mínútna kafla.

Hildur Eva Hinriksdóttir skoraði tvö mörk fyrir ÍR en Hólmfríður Þrastardóttir, Jóhanna Elísabet Guðmundsdóttir og Kristín Birna Sigurjónsdóttir eitt hver. Suzanna Rocha skoraði bæði mörk Smára.

ÍR var í 10. sæti fyrir þrískiptinguna en vann fjóra leiki í C-riðlinum, þar af tvo stórsigra á Smára, og endaði á toppi riðilsins.

Sumarið var hins vegar erfitt hjá Smára. Liðið vann aðeins einn leik og fékk á sig 123 mörk í 17 leikjum. Það hafnaði á botninum með fjögur stig.

B-riðill:

Afturelding 2 - 1 Dalvík/Reynir
1-0 Magðalena Ólafsdóttir ('21 )
1-1 Emilía Eir Pálsdóttir ('50 )
2-1 Adna Mesetovic ('90 )

C-riðill:

Smári 2 - 9 ÍR
0-1 Steinunn Lind Hróarsdóttir ('9 )
0-2 Hólmfríður Þrastardóttir ('14 )
0-3 Jóhanna Elísabet Guðmundsdóttir ('18 )
0-4 Hildur Eva Hinriksdóttir ('22 )
1-4 Suzanna Sofía Palma Rocha ('24 )
2-4 Suzanna Sofía Palma Rocha ('30 )
2-5 Steinunn Lind Hróarsdóttir ('37 )
2-6 Steinunn Lind Hróarsdóttir ('44 )
2-7 Steinunn Lind Hróarsdóttir ('47 )
2-8 Hildur Eva Hinriksdóttir ('51 )
2-9 Kristín Birna Sigurjónsdóttir ('82 )
Smári fékk 123 mörk á sig í 17 leikjum

Smári fékk 123 mörk á sig í 17 leikjum

Canon

Mynd: Aðsend

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding17+3538
2Dalvík/Reynir17-1321
3Augnablik16-2219
416-2318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.