Fotbolti.net
10.09.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Annað sætið getur skipt gríðarlegu máli fyrir félagið og okkur"

Rúnar Kristinsson.

Rúnar Kristinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fimm umferðir eru eftir í Bestu deild karla og er búið að skipta deildinni upp í efri og neðri hluta. Á toppnum er Víkingur með átta stiga forskot á Fram í öðru sætinu þegar fimmtán stig eru í pottinum.

Þrátt fyrir það segir Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, að mikið sé undir í síðustu leikjum. Fram er stigi á undan KR og fimmtán stigum á undan Breiðabliki í 4. sætinu.

Þið verðið í öðru eða þriðja sætinu ef þið náið ekki Víkingi, hvað vilt þú fá út úr þessum leikjum?
„Bara það sama og við höfum verið að gera í sumar, það er alltaf bara næsti leikur. Við vitum það, eins og þú segir, að við verðum að öllum líkindum númer tvö eða þrjú. Víkingur er væntanlega að fara vinna þetta mót, en annað sætið getur skipt gríðarlegu máli fyrir félagið og okkur. Það skiptir máli hvernig þú ferð inn í Evrópukeppni á næsta ári og það er gríðarlega mikið sem við erum að spila um við KR eins og staðan er núna," segir Rúnar.

Í sumar fór Íslandsmeistarinn 2025 inn í forkeppni Meistaradeildarinnar, annað sætið í deildinni kom inn í aðra umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni, þriðja sætið kom inn í fyrstu umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni og bikarmeistararnir fóru í fyrstu umferð forkeppninnar í Evrópudeildinni.

Næsti leikur Fram er heimaleikur gegn Breiðabliki næsta þriðjudagskvöld.

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.25+5060
2KR25+2950
3Fram25+1146
4Breiðablik25+336
5ÍA25-334
6Keflavík25-1029
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.