Fotbolti.net
10.09.26 - 14:48
Elvar Geir Magnússon

Arsenal að ganga frá nýjum samningi við Arteta

Arteta spjallar við fyrirliðann Martin Ödegaard.

Arteta spjallar við fyrirliðann Martin Ödegaard.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal er að ganga frá nýjum samningi fyrir Mikel Arteta, stjóra liðsins. Viðræður hafa verið í gangi og allt stefnir í að Spánverjinn skrif undir endurnýjaðan samning.

Arteta sagði í síðasta mánuði að samningamál sín væri ekkert vandamál því hans hugur væri að vera áfram hjá Arsenal og hann sé mjög ánægður.
Ofurtölvan spáir Arsenal sigri í Meistaradeildinni
TENGT EFNI

Ofurtölvan spáir Arsenal sigri í Meistaradeildinni

Að sama skapi sagði framkvæmdastjórinn Richard Garlick að það væri bara tímaspursmál hvenær nýr samningur yrði frágenginn.

Búast má við því að Arteta verði einn launahæsti stjóri heimsfótboltans með nýja samningnum. Hann á aðeins níu mánuði eftir af núgildandi samningi.

Frá því að Arteta var ráðinn til Arsenal í desember 2019 hefur hann bætt liðið mikið og það vann sinn fyrsta meistaratitil í 22 ár. Liðið er yfirgnæfandi líklegast til að vinna titilinn aftur á þessu tímabili og er talið líklegast í baráttunni um sigur í Meistaradeildinni.
Arsenal að ganga frá nýjum samningi við Arteta
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.