Fotbolti.net
10.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Courtois tekur sér frí frá landsliðinu - „Sagðist ekki geta lofað mér sæti þegar ég sný aftur“

Courtois tekur sér frí frá landsliðinu - „Sagðist ekki geta lofað mér sæti þegar ég sný aftur“
Canon

Mynd: EPA

Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid og belgíska landsliðsins, hefur staðfest að hann muni ekki spila með Belgum í Þjóðadeildinni en gæti snúið aftur fyrir leiki í undankeppni Evrópumótsins.
Courtois greindi frá ákvörðun sinni í sumar eftir heimsmeistaramótið og staðfesti hana í samtali við Mark van Bommel, nýjan landsliðsþjálfara Belgíu.

„Ég hef ákveðið að spila ekki með Belgíu í Þjóðadeildinni. Það á við um alla keppnina, nema þjálfarinn lendi í vandræðum vegna meiðsla. Þá gæti hann kallað mig inn,“ sagði Courtois við Het Laatste Nieuws.

Van Bommel gerði honum hins vegar ljóst að sæti í byrjunarliðinu yrði ekki tryggt þegar Þjóðadeildinni lyki.

„Hann sagði að hann gæti ekki lofað mér sæti í byrjunarliðinu eftir það. Ef markvörðurinn sem spilar í Þjóðadeildinni stendur sig vel gæti hann ákveðið að halda honum í liðinu. Ég vil hins vegar berjast fyrir sæti mínu og sanna að ég geti aftur orðið númer eitt,“ sagði Courtois.

Courtois er 34 ára gamall og hefur leikið 115 landsleiki fyrir Belgíu. Hann hefur verið í hópi bestu markvarða heims undanfarinn áratug og unnið 21 titil með Genk, Atlético Madríd, Chelsea og Real Madrid. Þá komst hann í undanúrslit HM með Belgíu árið 2018.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.