10.09.26 - 14:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Davíð Smári skráður í banni á sunnudaginn en verður á hliðarlínunni

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, fékk sitt fjórða gula spjald í sumar í gær og á heimasíðu KSÍ er hann skráður í leikbanni.
Það eru hins vegar ekki staðan því eins gildir með þjálfara og leikmenn að eftir 22. umferð, bæði í Bestu deild karla og Lengjudeildinni, fá allir þeir sem hafa fengið þrjú gul spjöld eða færri í deildinni eitt spjald í afslátt (skv. grein 13.1.1 í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál) - þ.e.a.s. eitt spjald er dregið af spjaldafjöldanum og þurfa þeir leikmenn eða þjálfarar að fá alls fimm gul spjöld til að fá leikbann fyrir uppsöfnuð gul spjöld. Þetta staðfestir Axel Kári Vignisson sem er lögfræðingur KSÍ í samtali við Fótbolta.net og vísar í grein 13.6:
„Ef þjálfari eða forystumaður liðs sem er á leikskýrslu er áminntur af dómara eða vísað frá leikvelli, skal viðurlögum beitt eftir sömu reglum og gilda um leikmenn, þar sem þær eiga við."
Gula spjaldið fékk Davíð Smári eftir leikinn gegn Þrótti í gær en hann var ósáttur við störf Gunnars Freys Róbertssonar sem dæmdi leikinn.

Njarðvík tók á móti Þrótti í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Lengjudeildarumspilinu í gær og er Þróttur með eins marks forystu eftir leikinn. Þróttur tekur á móti Njarðvík á PEPSI vellinum á sunnudag í seinni leik liðanna. Sigurlið einvígisins fer svo í úrslitaleikinn um sæti í Bestu deildinni.