Fotbolti.net
10.09.26 - 21:56
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir úr Meistaradeildinni: Miðjumenn Man Utd frábærir - Olise í heimsklassa

Youri Tielemans var frábær hjá United

Youri Tielemans var frábær hjá United

Canon

Mynd: EPA

Kobbie Mainoo og Youri Tielemans voru í hópi bestu leikmanna Manchester United í 4-0 stórsigrinum á Sabah í Meistaradeildinni í kvöld, en þeir fá báðir átta í einkunn hjá Manchester Evening News, líkt og Matheus Cunha.
Mainoo var svolítið ryðgður í byrjun leiks en vann sig vel inn í leikinn og var frábær það sem eftir var. Hann fær átta fyrir frammistöðuna eins og Tielemans sem stjórnaði miðsvæðinu.

Besti leikur Tielemans síðan hann gekk í raðir félagsins frá Aston Villa í sumar.

Matheus Cunha fær einnig átta hjá United.

Einkunnir Man Utd gegn Sabah: Lammens (6), Mazraoui (6), Yoro (7), Martínez (7), Dorgu (6), Tielemans (8), Mainoo (8), Fernandes (7), Mbeumo (7), Cunha (8), Sesko (7).
Varamenn: Mount (6), Santos (6), Zirkzee (6), Amass (6), Lacey (6).

Bæjarar unnu frábæran 5-0 sigur á Bodö/Glimt þar sem Michael Olise var allt í öllu. Hann skoraði tvö mörk og var með eina stoðsendingu ásamt því að hafa átt þátt í öðru.

Livescore gefur honum níu fyrir frammistöðuna. Joshua Kimmich, Jamal Musiala og Harry Kane fá allir átta.

Einkunnir Bayern gegn Bodö/Glimt: Manuel Neuer (7), Konrad Laimer (7), Dayot Upamecano (7), Jonathan Tah (7), Alphonso Davies (7), Joshua Kimmich (8), Aleksandar Pavlovic (7), Michael Olise (9), Jamal Musiala (8), Luis Diaz (5) Harry Kane (8).
Michael Olise er í heimsklassa

Michael Olise er í heimsklassa

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.