Fotbolti.net
10.09.26 - 22:30
Brynjar Ingi Erluson

Eto'o ætlar að kjósa Infantino

Samuel Eto'o segir Infantino vera vin sinn

Samuel Eto'o segir Infantino vera vin sinn

Canon

Mynd: EPA

Samuel Eto'o, forseti kamerúnska fótboltasambandsins, segist ætla að styðja Gianni Infantino til endurkjörs sem forseta alþjóðafótboltasambandsins FIFA í mars á næsta ári.
Infantino sækist eftir endurkjöri
TENGT EFNI

Infantino sækist eftir endurkjöri

Eto'o hefur lýst yfir stuðningi við Gianni Infantino og vill fá öll 54 afrísku fótboltasamböndin til að styðja hann.

Eto'o átti frábæran feril með félögum á borð við Barcelona og Inter og er talinn besti leikmaður í sögu Kamerúns. Hann hefur verið forseti fótboltasambands landsins frá árinu 2021.

Mörg sambönd hafa dregið stuðning sinn við Infantino til baka eftir að hann reyndi að selja einkafjárfestum hlut í mótum á vegum FIFA. Hugmyndin sætti harðri gagnrýni og var að lokum slegin út af borðinu, en einnig hefur verið kallað eftir afsögn hans.

Infantino ætlar þó ótrauður áfram og er talinn eiga vísan mikinn stuðning í Afríku, enda segir Eto'o hann hafa gert mikið fyrir fótboltann þar.

„Gianni er mér eins og bróðir, eiginlega stóri bróðir, og vinur. Við höfum fylgst með honum frá því hann kom inn, stutt hann og byggt upp saman í þágu fótboltans.“

„Ef ég held áfram sem forseti fótboltasambands Kamerúns mun ég kjósa hann vegna alls þess sem hann hefur gert fyrir afrískan fótbolta.“

„Ég mun líka beita mér fyrir því meðal kollega minna hjá afrísku samböndunum að allir 54 forsetarnir kjósi Gianni. Ég tel hann hafa gert mest fyrir Afríku,“
sagði Eto'o.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.