Fotbolti.net
10.09.26 - 09:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fanney Lísa keypt á sjö milljónir til Molde

Fanney Lísa keypt á sjö milljónir til Molde
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fanney Lísa Jóhannesdóttir er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið til norska félagsins Molde frá uppeldisfélaginu Stjörnunni. Ekki er búið að tilkynna félagaskiptin en Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, staðfesti við Fótbolta.net á mánudagskvöld að Fanney væri á leið í atvinnumennsku.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er kaupverðið um sjö milljónir króna sem gerir hana að einum dýrasta leikmanni sem seldur hefur verið úr Bestu deildinni, en talið er að þær Fanney Inga Birkisdóttir (frá Val til Häcken) og Thelma Lóa Hermannsdóttir (frá FH til Häcken) séu þær dýrustu.

Fanney Lísa er kantmaður sem fædd er 2009, hún var mjög eftirsótt og voru Hammarby og Roma á meðal félaga sem vildu líka fá hana.
Fanney Lísa að verða atvinnumaður - „Félagið er ofboðslega stolt af henni"
TENGT EFNI

Fanney Lísa að verða atvinnumaður - „Félagið er ofboðslega stolt af henni"

Hún lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki Stjörnunnar 2024, lék þá þrettán deildarleiki og skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni. Árið á undan, 2023, lék hún með Álftanesi í 2. deild.

Í ár varð hún að lykilmanni í Stjörnunni, skoraði fimm mörk í deildinni og hefur einnig lagt upp mörk í sumar. Engin í Stjörnunni hefur skorað fleiri mörk.

Hún er unglingalandsliðskona, hefur þegar spilað 31 leik fyrir yngri landsliðin og skorað í þeim tíu mörk.

Hjá Molde hittir hún fyrir Sóleyju Eddu Ingadóttur, sem er árinu eldri en Fanney Lísa og sömuleiðis uppalin hjá Stjörnunni, og Amöndu Andradóttur.
Fanney Lísa keypt á sjö milljónir til Molde
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.